Lögin hennar Ingu

Gjörðu svo vel

Lítið lag sem þjálfar kurteisi :)

Leiðbeiningar

Þetta litla lag er samið sem þjálfun í kurteisum samskiptum.

Gaman er að bregða á leik með laginu.

Það er sem dæmi hægt að gera með því að para saman tvö og tvö börn. Öðru barninu er gefið lítill hlutur og í takt við lagið skiptast þau á að færa hvort öðru hlutinn og þakka fyrir það.