Flokkur
Tónlist í leikskóla
Hjá Kópavogsbæ var stofnaður starfshópur árið 2025 sem hafði það hlutverk að safna saman og miðla námsefni fyrir leikskóla sem tengist tónlist og tónlistarstarfi. Markmið verkefnisins er að styrkja gæði tónlistarmenntunar í leikskólum og auka aðgengi starfsfólks að fjölbreyttu og faglegu kennsluefni. Tónlist gegnir mikilvægu hlutverki í námi og þroska ungra barna. Rannsóknir benda til þess að tónlistarstarf styðji við málþroska barna með því að efla orðaforða, hlustun, taktskyn og hljóðkerfisvitund. Hljóðkerfisvitund, sem felur í sér getu barna til að greina, þekkja og vinna með hljóð tungumálsins, er einn af mikilvægum undirstöðuþáttum læsis og lestrarnáms. Í gegnum söng, rímur, taktleiki og fjölbreytt tónlistarverkefni fá börn tækifæri til að æfa þessa færni á leikrænan og ánægjulegan hátt. Með því að efla tónlistarstarf í leikskólum er þannig ekki aðeins verið að styðja við sköpunargleði og tjáningu barna heldur einnig að leggja mikilvægan grunn að málþroska og framtíðarlæsi þeirra.
36 efnisatriði
