Flokkur
Hljóðfæraleikir
Hljóðfæri eru skemmtileg og fjölbreytt námstæki sem geta gert samverustundir líflegri og stuðlað að virkri þátttöku barna. Þau geta verið kærkomið uppbrot og veitt börnum tækifæri til að tjá sig og skapa tónlist. Þegar hljóðfæri eru notuð í barnahópi geta læti og hávaði stundum orðið yfirþyrmandi, sérstaklega fyrir kennara sem stýra starfinu. Það er þó mikilvægt að láta það ekki draga úr notkun þeirra, enda bjóða hljóðfæri upp á fjölmörg námstækifæri. Með skýrum ramma skapa hljóðfæraleikir kjörnar aðstæður til að efla sjálfstjórn barna. Börnin þurfa að bíða eftir merki, fylgja fyrirmælum, stjórna hljóðstyrk og taka tillit til annarra í hópnum. Sjálfstjórn er mikilvægur þáttur í félagsfærni og námi barna þar sem hún styður við einbeitingu, samskipti, tilfinningastjórn og hæfni til að taka þátt í sameiginlegu starfi. Hljóðfæri henta vel til þjálfunar á takti og hrynjanda, sem eru mikilvægir grunnþættir tónlistar. Slík þjálfun styður einnig við þróun hljóðkerfisvitundar þar sem börn læra að greina, bera saman og vinna með mismunandi hljóð. Með markvissri notkun hljóðfæra má einnig þjálfa tóneyra barna, efla hlustunarskilning og styrkja hæfni þeirra til að greina blæbrigði í hljóðum, tónhæð og styrkleika. Þannig geta hljóðfæraleikir verið bæði skemmtilegir og lærdómsríkir, þar sem tónlist, málþroski, hlustun, félagsfærni og sjálfstjórn fléttast saman í leik og námi.
8 efnisatriði
Efni í flokknum
- Hljóðfæraleikir

Hr. Rokk og fýlustrákurinn
Ég myndi segja að Hr. rokk og fýlustrákurinn sé mitt uppáhaldslag til að byrja með hóp í trommuleik.
- Spotify
- Hljóðfæraleikir

Nótnakallar
Nótnakallarnir eru einföld leið til að byrja að þekkja nótur.
- PDF-skjöl
- Hljóðfæraleikir

Tónlistarbingó
Tónlistarbingó er skemmtileg leið til að þjálfa hlustun barna.
- PDF-skjöl
- Spotify
- Hljóðfæraleikir
Hljóðfærahúsið
Hljóðfærahúsið er einfaldur leikur þar sem er verið að þjálfa hlustun og þekkja hljóðfærin.
- Myndbönd
- Hljóðfæraleikir
Töfrakassinn
Þessi litli leikur er að verða einn vinsælasti leikurinn í mínum stundum.
- Myndbönd
- Hljóðfæraleikir
Trommugleði - Slá í takt
Að slá í takt getur verið mjög gagnlegt.
- Spotify
- Myndbönd
- Hljóðfæraleikir
Skeiðastjórnandi
Þessi leikur er einfaldur, en afskaplega skemmtilegur.
- Myndbönd
- Þrautir

Tónlistarþraut
Tónlistarþraut: eitt PDF-skjal til útprentunar.
- PDF-skjöl