
Leiðbeiningar
Nótnakallarnir
Þegar kallarnir eru kynntir til leiks er lögð áhersla á að þekkja nöfn þeirra og þekkja þá aðeins.
Gott er að merkja klukkuspil, sérstaklega þau sem hægt að taka í sundur og verða stök hljóðfæri. Það skiptir máli að gera þá sýnilega þannig börnin venjist þeim.
Leikir sem hægt er að fara í með nótnakallana.
- Til að byrja með er hægt að leika almennt með þá.
Fela nótnakall - sami leikur og að fela hlut. Þau börn sem fela kallinn fá svo klukkuspil og hægt er að gera einfalda útgáfu að þau spila laust þegar viðkomandi er langt frá kallinum, og hátt þegar þau eru nálægt. Einnig er hægt að flækja þetta með því að spila á lágu tónana þegar viðkomandi er langt frá og háu tónana þegar viðkomandi er kominn nær.
Hvern vantar : Allir nótnakallarnir settir undir teppi og svo hverfur einn eða tveir í hvert skiptið og börnin nota minnið til þess að finna út hvern vantar. - Spila lög, saman og æfa sig sjálfur.
Hægt er að spila lögin sem er að finna hér á síðunni t.d. Það er hægt að gera það saman, þar sem hvert barn er með einn nótnakall og kennari er stjórnandi. Barnið spilar því einungis á sinn nótnakall þegar kennari bendir á hann á nótunum.
Einnig er hægt að æfa sig sjálfur á klukkuspil eða píanó sem hefur verið merkt með nótnaköllunum. - Aðrir leikir
Hlusta eftir hljóðinu
Barn/kennari spilar á einn nótnakall í einu og börnin reyna að hlusta og giska á hvaða nótnakall er að spila. Þessi leikur er mjög erfiður fyrst, en börnin þjálfast fljótt í þessu.
Skjöl
Nótnakallarnir
Hér að finna nótnakallana, bæði á A4 spjaldi þar sem þeir eru allir saman, en einnig stærri.
Lög með Nótnaköllunum
Hér eru nokkur lög sem hægt er að leika sér með sem nótnakallarnir hjálpa okkur að spila