Leiðbeiningar
Slá í takt.
Hér að neðan eru lög sem henta vel til þess að tromma með.
In the mood - Glenn Miller
Lagið er Jazz lag sem varð uppáhalds trommulag þegar við vorum að vinna með þá stefnu.
Trommað er við það tvö slög í takt við trompetinn og byrjar sá taktur 0:21 í laginu.
Lagið breytir svo um stefnu 0:52, en áfram trommum við tvö slög með trompetinum.
Trommað er með laginu fram að 1:13.
Rag Mop - Lionel Hampton
Þetta lag hefur slegið í gegn í mínum stundum, fjörugt og skemmtilegt.
Lagið hentar vel til þess að þjálfa hlustun, hrynjanda og einnig til þess að þjálfa sjálfstjórnun og að hætta að tromma.
Þegar börnunum er kennt á trommur er gott að vera með ákveðna reglu þegar þau eiga ekki að spila á trommuna. Ég hef notað að börnin geymi hendur á höfði þegar ég vil fá þögn.
Trommað er með þessu lagi þrjú slög og svo tvö slög.
Takturinn byrjar strax (0:05) og því góð æfing að vera tilbúin frá byrjun. En við trommum með hljóðfærunum þegar þau svara sönginum.
0:35 breytist svo lagið. Þá byrjum við að tromma við þegar söngvarinn syngur Rag Mop. Gaman er einnig að syngja Rag Mop. Taktæfingunni lýkur svo 0:50.
Blue Danube - Johann Strauss
Þessi Vals er mjög frægt stykki. Tempóið er rólegt.
Við trommum við slögin sem koma þegar strenginir svara. Þá trommum við einn, tveir, þrír fjór.
Takturinn byrjar á 0:04.
Á 0:33 mega svo börnin spila frjálst, en passa sig að spila lágt (piano).
Cuckoo Ritim - Burak Onurlu
Þetta lag er frábært til að leika sér að. Takturinn er endurtekinn allt lagið með litlum hléum.
Ég nota taktinn ta, ta, tití ta.
Hægt að láta þau slá ta, ta hátt og seinni hluta lágt og skipta svo um.
Það er einnig hægt að nota þetta lag til að klappa, stappa og nota aðra líkamshluta.
Cuckoo Ritim - Burak Onluru
Þetta litla skemmtilega lag er mjög fjölbreytt til að þjálfa hrynjanda og nota í trommuleiki.
We will rock you - Queen
Þetta vinsæla lag er skemmtilegt að nota sem trommulag. Það þarf mikið úthald og góða hlustun til þess að tromma í takt við lagið.