Leiðbeiningar
Búa til sól með líkamanum
Markmið:
· Að börnin vinni með öðrum til að skapa mynstur.
· Að börnin taka þátt í leik í hóp.
· Að börnin hlusti eftir fyrirmælum.
· Að börnin myndi traust til jafningja.
Lýsing:
· Börnin leggjast á gólfið eða jörðina og mynda sól, börnin stjórna því hvernig á að leggjast.
· Eitt barn stendur upp og hoppar yfir hvert og eitt barn, þegar barnið er komið hringinn þá tekur næsta barn við.
Teikna sól með líkamanum
Markmið:
• Að börnin læri að greina hugtakið hringur og línur.
• Að börnin læri að beita mismunandi líkamshlutum.
• Að börnin hreyfi sig og skapi með tilliti til stærðar rýmis.
Lýsing:
- Kennari biður börnin um að teikna sól á blað.
- Kennari biður börnin um að teikna sól með mismunandi líkamshlutum t.d. hendur olnboga, hné, höfuð o.s.frv.
- Kennari biður börnin um að teikna sól í mismunandi stærðum.
T.d. Stóra sól eins og fíll væri að teikna með rananum sínum. Litla sól eins og mús væri að teikna með skottinu sínu. Ef þið færuð til sólarinnar með geimskipi, hversu stór yrði sólin þá?
- Kennari sýnir börnum málningarfötu og biður þau um að teikna sól með ósýnilegri málningu. Nota mismunandi hæð, t.d. ímynda sér að mála á gólf, vegg og loft. Einnig nota mismunandi líkamshluta og stærð.
Hringdans „Sól sól skín á mig“
Markmið:
· Að börnin greini hugtakið hringur.
· Að börnin læri að búa til hring með öðrum.
· Að börnin vinni saman í hóp.
· Að börnin hlusti á tónlist og hreyfa sig í takt.
· Að börnin læri einfalda samsetningu í dansi.
Danslýsing:
- Leiðast í einföldum hring
- A - Ganga 8 takta réttsælis, 8 takta rangsælis.
- B - 4 skref inn í hring, 4 skref aftur á bak, endurtaka einu sinni.
- Endurtaka A og B.
- Hægt að hafa í stað þess að ganga.
- A - Ganga 16 takta í sömu átt.
- B - 8 skref inn í hring, 8 skref aftur á bak einu sinni.
Slökun - Teikna sól
Markmið:
• Að börnin nái góðri slökun.
• Að börnin sýni umhyggju og virðingu fyrir jafningjum.
Lýsing:
- Börnin sitja í hring eða tvö saman.
- Börnin teikna rólega hring og sólargeisla á bakið á hvert öðru.